Segja Suðurland kjörinn stað fyrir stóriðju

Þorvarður Hjaltason, framkv.stjóri Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga, Kjartan Ólafsson, þingmaður og …
Þorvarður Hjaltason, framkv.stjóri Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga, Kjartan Ólafsson, þingmaður og formaður stóriðjunefndarinnar og Sigurður Bjarnason, formaður hafnarnefndar Þorlákshafnar, um borð í lóðsbát Þorlákshafnar. mbl.is/

Samtök sunnlenskra sveitarfélaga kynntu í dag skýrslu og niðurstöður nefndar um stóriðju á Suðurlandi. Niðurstaða nefndarinnar er einróma á þá leið að Suðurland uppfylli öll helstu skilyrði sem svæði fyrir stóriðju þarf að uppfylla að því er segir í fréttatilkynningu.

Fram kemur að um 70% af allri raforku landsins sé framleidd á Suðurlandi, mikið sé af heitu og köldu vatni á svæðinu, landrými mikið og umhverfisskilyrði góð. Árborgarsvæðið sé öflugt bakland hvað varði vinnuafl og stoðþjónustu og höfuðborgarsvæðið er sömuleiðis skammt frá.

Það eina sem vanti upp á til þess að reisa megi orkufrekan iðnað á Suðurlandi sé stórskipahöfn. Sátt ríki um það í héraðinu að Þorlákshöfn sé ákjósanlegur valkostur fyrir stórskipahöfn og Siglingastofnun hafi sýnt fram á með rannsóknum að slíkt sé vel framkvæmanlegt.

Þrjár vegalengdir á milli fjögurra staða skipta mestu þegar orkufrekur iðnaður er skipulagður.

  • Vegalengd frá orkuvinnslu til iðnaðar – Löng leið eykur orkutap og kostnað við lagningu og viðhald.
  • Vegalengd frá iðnaði til hafnarútskipunar – Löng leið veldur álagi á vegakerfi.
  • Vegalengd frá höfn á markað – Löng leið eykur flutningskostnað og dregur úr viðbragðsflýti.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert