Verð á bensíni hefur sigið nokkuð í dag. Olíufélagið lækkaði verð um 0,50 krónur í dag og er algengt verð í sjálfsafgreiðslu 131 króna lítrinn Verð hefur einnig lækkað hjá Atlantsolíu, þar sem það er 129,60 krónur, og hjá Orkunni, þar sem lítrinn er 0,10 krónum ódýrari.