Jónína Bjartmarz, umhverfisráðherra, þakkaði stuðningsmönnum sínum fyrir stuðninginn. Hún segir að kosningabaráttan hafi verið drengileg og Framsóknarflokknum til sóma. Sagði Jónína að þetta væri í annað skiptið sem hún atti kappi við Guðna og í bæði skiptin hafi hún tapað. „En allt er þegar þrennt er," sagði Jónína og uppskar mikinn hlátur í salnum. Hún segist ætla að starfa áfram fyrir hönd Framsóknarflokkinn líkt og áður og á því verði engin breyting.