Útlenskur ferðamaður steig ofan í hver og brenndist á fæti

Útlenskur ferðamaður brenndist á fæti er hann steig ofan í hver við Kröfluvirkjun um fjögurleytið í dag. Að sögn lögreglunnar á Húsavík var maðurinn færður undir læknishendur í bænum. Lögreglan segist ekki vita hvort maðurinn væri mikið brenndur eður ei.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert