Vegna alvarlega sýkinga í Bandaríkjunum sem rakin eru hugsanlega til neyslu á fersku spínati hefur sala á öllu bandarísku spínati verið stöðvuð. Þetta er gert til að verja neytendur meðan verið að komast að rót vandans. Þessi vara var fjarlægð úr verslunum á hádegi í gær, laugardag.
Þær tegundir sem seldar eru í verslunum Hagkaupa og innihalda spínat eru frá vörumerkjunum „Hollt og Gott" og „Earthbound Farms". Neytendur eru hvattir til að skila þeim pokum eða boxum sem þeir kunna að eiga heima í ískáp í næstu verslun og fá hana endurgreidda.
Eins og greint var frá í gærmorgun á Fréttavef Morgunblaðsins lést kona og 94 veiktust vegna þess að kólígerlar fundust í spínati. Meðal annars var um spínat að ræða frá Earthbound Farms, samkvæmt fréttum AFP fréttastofunnar og Reuters.
Spínat undir nafninu „Himnesk Hollusta" er hins vegar valkostur í þessari stöðu þar sem það er ræktað í Hollandi, að því er segir í tilkynningu frá Hagkaupum.