Í Sunnlenska fréttablaðinu á Selfossi er sagt frá því Arctus ehf. hafi fengið úthlutað lóð vestan byggðarinnar í Þorlákshöfn undir orkugarð. Í fyrsta áfanga er gert ráð fyrir að reist verði álver, með 60 þúsund tonna framleiðslugetu á ári, og endurbræðsla sem bræðir ál til frekari vinnslu. Arctus var stofnað árið 2004 en félagið er í eigu Jóns Hjaltalíns Magnússonar verkfræðings og fleiri aðila.
Segir í fréttinni að verði af framkvæmdum munu skapast hundruð nýrra starfa á stór-Árborgarsvæðinu; þar af fjölmörg vel launuð hátæknistörf.
Samkvæmt heimildum Sunnlenska eru fjársterk risafyrirtæki, tengd áliðnaðinum í Bandaríkjunum og Asíu, á meðal bakhjarla félagsins í Þorlákshafnarverkefninu.
Ólafur Áki Ragnarsson, bæjarstjóri Ölfuss, segir sveitarfélagið og Arctus hafa átt í viðræðum við orkuframleiðendur, varðandi orkuöflun, en segir þær viðræður á frumstigi. 2Það er ekki búið að ganga frá samningum um raforkuverð en nefndar hafa verið tölur sem málsaðilar telja ásættanlegar. Fjöldi beinna starfa við orkugarðinn mun skipta hundruðum og fjöldi afleiddra starfa á svæðinu verður síst minni,” segir Ólafur Áki.
Samkvæmt tímaramma verkefnisins er gert ráð fyrir að umhverfismat liggi fyrir árið 2009 og framkvæmdum við fyrsta áfangann, 60 þúsund tonna álver, verði að fullu lokið árið 2012, svo fremi að orkan fáist afhent á þeim tíma.
Stóriðjunefnd Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga hefur undanafarið ár unnið að markaðssetningu Þorlákshafnar með tilliti til stóriðju. Kjartan Ólafsson alþingismaður er formaður nefndarinnar og hann segir að áhugi Arctus sé uppskera þeirrar vinnu. „Styrkur verkefnisins felst ekki minnst í því að jarðvarmaorkan á Suðurlandi verður nýtt í héraði. Annað sem einnig er mikilvægt er að ekki er eingöngu verið að tala um álbræðslu heldur einnig endurbræðslu á áli sem kallar á fjölda vel launaðra hátæknistarfa og veldur engri mengun. Orkugarðurinn verður byggður upp í áföngum en ekki er talið nauðsynlegt að stækka höfnina í Þorlákshöfn vegna fyrsta áfangans sem byggir á 60 þúsund tonna álveri. Til þess mun þó koma á síðari stigum og er kostnaður við stækkun hafnarinnar áætlaður um fjórir milljarðar króna,” segir Kjartan.
Jón Hjaltalín Magnússon segist vongóður um að af þessu verkefni verði og hann væntir þess að á næstu mánuðum muni erlendir samstarfsaðilar koma til landsins og skoða aðstæður.