Þegar í stað hafist handa við að auka umferðaröryggi

Vonir standa til þess, að þegar í stað verði hægt að aðskilja akstursstefnur á Suðurlandsvegi og Vesturlandsvegi þar sem aðstæður leyfa og breikka vegina þar sem brýnast er. Segir samgönguráðuneytið, að með þessu verði hrundið í framkvæmd árangursríkum aðgerðum í þágu aukins umferðaröryggis.

Fram kemur á heimasíðu samgönguráðuneytisins, að haldinn var í dag fundur í samgönguráðuneytinu um umferðaröryggismál og framkvæmdir við endurbætur á Suðurlandsvegi og Vesturlandsvegi og voru málin rædd frá ýmsum hliðum. Tilefnið var að Alþingi hefur samþykkt sérstaka fjárveitingu á fjáraukalögum til umferðaröryggisaðgerða á vegunum tveimur.

Segir ráðuneytið, að þar sem umferðaröryggisaðgerðir á Suðurlandsvegi og Vesturlandsvegi þoli enga bið sé mikilvægast, að bregðast við með aðgerðum sem nú þegar gefa aukið öryggi á hættulegustu vegarköflunum.

Fram hefur komið að markmið og stefna Sturlu Böðvarssonar, samgönguráðherra, sé að Suðurlandsvegur og Vesturlandsvegur verði tvöfaldaðir og að verkefnið verði sett í samgönguáætlun sem kemur til meðferðar Alþingis í byrjun næsta árs. Slíkar framkvæmdir eru umfangsmiklar og flóknar og krefjast margháttaðs undirbúnings svo sem hönnunar og umhverfismats. Hefur Sturla þegar falið Vegagerðinni að hefja undirbúning að tvöföldun veganna á sviði skipulagsmála og umhverfismats.

Fundinn í dag sátu fulltrúar samgönguráðuneytisins undir stjórn Ragnhildar Hjaltadóttur ráðuneytisstjóra og ýmsir sérfræðingar sem starfa á sviði umferðaröryggismála og vegagerðar, þau Ólafur Guðmundsson, verkefnisstjóri EURORAP vegamatskerfisins og varaformaður Félags íslenskra bifreiðaeigenda, Birgir Hákonarson frá Umferðarstofu og Auður Þóra Árnadóttir frá Vegagerðinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert