Lögreglu á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um eldsvoða í bílskúr í Hólahverfinu í Breiðholti á sjöunda tímanum í kvöld. Mun eigandi bílskúrsins hafa verið að hella bensíni á fjórhjól úr brúsa en gáði ekki að því að hann var með logandi sígarettu í munninum. Einhverjar skemmdir urðu á bílskúrnum en manninn sakaði ekki að öðru leyti en því að það sviðnaði á honum hárið.