Eldur kviknaði í feiti í potti á eldavél í íbúð á jarðhæð í fjölbýlishúsi á Eiðismýri 30 á Seltjarnarnesi klukkan ellefu í morgun. Tvennt var í íbúðinni er eldurinn kom upp. Flytja þurfti karlmann á slysadeild en hann var ekki talinn alvarlega slasaður. Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins gekk greiðlega að slökkva eldinn og reykræsta en íbúðin er talin mikið skemmd.