Bjarni Vestmann nýtur enn trausts utanríkisráðherra

Bjarni Vestmann, sendifulltrúi íslenska utanríkisráðuneytisins, með S. P. Thamilselvan en …
Bjarni Vestmann, sendifulltrúi íslenska utanríkisráðuneytisins, með S. P. Thamilselvan en myndin er tekin af heimasíðu tamílsku Tígranna. AP

Bjarni Vestmann nýtur enn trausts utanríkisráðherra til trúnaðarstarfa á vegum ráðuneytisins. Þetta kemur fram í tölvupósti sem Grétar Már Sigurðsson, ráðuneytisstjóri í utanríkisráðuneytinu, sendi öllum starfsmönnum ráðuneytisins í gær. Póstinn sendi ráðuneytisstjórinn í ljósi myndbirtingar og fjölmiðlaumfjöllunar um fund Bjarna með Tamilselvan, pólitískum leiðtoga Tamíl-tígranna á Srí Lanka, í lok síðasta mánaðar.

Tölvupósturinn endar á eftirfarandi orðum: „Mál þetta er áminning til okkar allra um hvernig nærvera við flókin alþjóðleg deilumál getur leitt til óvæntrar atburðarásar og þar með um mikilvægi þess að vera ávallt á varðbergi. Bjarni Vestmann lenti í erfiðri aðstöðu í ferð sinni en áhersla skal lögð á að hann á að baki farsælan feril í utanríkisþjónustunni og nýtur eftir sem áður trausts utanríkisráðherra og starfsmanna til trúnaðarstarfa á vegum ráðuneytisins."

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert