Lögreglan á Suðurnesjum gerði húsleit í klúbbhúsi bifhjólaklúbbs Fáfnis í Reykjavík nú á fimmta tímanum með aðstoð lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og sérsveitar ríkislögreglustjóra. Samkvæmt upplýsingum mbl.is hafa einhverjir verið handteknir en nánari upplýsingar liggja ekki fyrir að svo stöddu. Húsleitin er enn í gangi og er hún talin tengjast viðameiri rannsókn.