Eldur í bíl á Vesturlandsvegi

Eldur kviknaði í Cadillac og var mikill eldsmatur í honum …
Eldur kviknaði í Cadillac og var mikill eldsmatur í honum og teppti reykur umferð. mbl.is/Júlíus Sigurjónsson

Eldur kviknað í fólksbíl af gerðinni Cadillac í hringtorgi á Vesturlandsvegi skammt fyrir ofan Úlfarsfell um klukkan fimm í dag. Engan mun hafa sakað og ekki urðu aðrir bílar fyrir tjóni en vegurinn tepptist og mynduðust raðir á Vesturlandsvegi vegna reyks og brælu. Skyggnið varð að sögn slökkviliðs lítið á tímabili en mikið eldsneyti mun hafa verið í bílnum sem kviknaði í.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert