Flutningaskipið Axel kom til hafnar á Fáskrúðsfirði um sexleytið í kvöld, en skipið skemmdist er það strandaði við Hornafjarðarós í morgun. Skipið hefur síðan verið skoðað mat lagt á skemmdir og hafa kafarar m.a. farið undir skipið. Ákvörðun um það hvað verður svo gert í framhaldinu verður líklega tekin á morgun.