Ms Axel er 2.500 tonna frystiskip, byggt árið 1989. Skráður eigandi skipsins er Dregg ehf. en það er skráð á eyjunni Mön. Í áhöfn skipsins eru 11 manns.
Flutningaskipið var með fullfermi af frosnum fiski þegar óhappið varð og um 170 tonn af olíu voru talin vera um borð í skipinu. Ekki varð þó olíumengun við óhappið.