Meðferð bandarískra yfirvalda á íslenzkri konu, Erlu Ósk Arnardóttur Lilliendahl, sem lýst er í Morgunblaðinu í dag, er hneyksli. Ríki sem leyfir sér að koma fram við almenna ferðamenn á þann veg sem Erla Ósk lýsir er á hraðri leið að verða að lögregluríki, sem svífst einskis í samskiptum við fólk.
Hér skal dregið í efa að íslenzkur þegn hafi nokkru sinni fengið aðra eins meðferð og Erla Ósk lýsir, m.a. í Morgunblaðinu í dag, hjá ríkjum kommúnismans eða fasismans eða nokkru einræðis- og kúgunarríki í veröldinni.
Sú var tíðin að Bandaríkin voru brjóstvörn frelsis og lýðræðis í heiminum. Svo er bersýnilega ekki lengur. Saklaus kona frá Íslandi fer í skemmtiferð með vinkonum sínum til Bandaríkjanna og er handtekin vegna þess að tólf árum áður hafði hún verið þremur vikum lengur í landinu en vegabréfsáritun hennar sagði til um. Í millitíðinni hefur hún áður komið til Bandaríkjanna án athugasemda af þessu tilefni.
Þessi saklausa kona er sett í fangelsi, fær ekki að hafa samband við nokkurn mann og er hlekkjuð á höndum og fótum og þannig flutt út í íslenzka flugvél um leið og henni er vísað úr landi.
Það er ekki hægt að hafa nokkur orð um þessa framkomu. Þau stjórnvöld sem svona haga sér gagnvart venjulegu fólki af ekki meira tilefni eru gersamlega sturluð. Þau vita hvorki í þennan heim né annan. Þau hafa misst veruleikaskyn. Framkoma bandarískra yfirvalda við Erlu Ósk er fyrirlitleg.
Íslenzk stjórnvöld hljóta að fylgja fast eftir mótmælum gagnvart bandarískum stjórnvöldum fyrir þessa ótrúlegu framkomu gagnvart íslenzkum ríkisborgara. Utanríkisráðherra Íslands, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, hlýtur að setja sig í samband við utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Condoleezzu Rice, og krefjast skýringa.
Það er lágmarkskrafa að bandarísk stjórnvöld biðji Erlu Ósk afsökunar á þeirri framkomu sem henni var sýnd við komu til Bandaríkjanna. Þessi kona hlýtur að eiga kröfu á skaðabótum úr hendi bandarískra stjórnvalda fyrir þá svívirðilegu framkomu sem henni var sýnd.
Gera má ráð fyrir að ferðum íslenzkra ríkisborgara til Bandaríkjanna fækki eftir þennan atburð. Hver vill eiga yfir höfði sér meðferð lögregluríkis við komu til Bandaríkjanna? Hver vill eiga það yfir höfði sér að vera dreginn hlekkjaður á höndum og fótum í gegnum flugstöð og út í flugvél? Auðvitað vill enginn eiga það yfir höfði sér.
Almenningur á Íslandi mun fylgjast náið með því, hvernig íslenzk stjórnvöld bregðast við. Hvað ætli Bandaríkjamenn segðu ef bandarískur þegn væri handtekinn í Keflavík, neitað um að hafa samband við sitt fólk og dreginn hlekkjaður á höndum og fótum um flugstöðina?