Varað við að vera á ferli

Álag á Samhæfingarstöð almannavarna er stigvaxandi og hafa borist um 70 óskir um aðstoð á höfuðborgarsvæðinu. Helst eru það fjúkandi hlutir en einnig eru þakplötur losna af húsum.   Búið er að kalla út allar björgunarsveitir á höfuðborgarsvæðinu og núna eru um 120 björgunarmenn að störfum ásamt lögreglu og  slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. 

Einnig hafa borist óskir um aðstoð á Suðurnesjum, Akranesi og Mýrum og þar eru björgunarsveitir einnig að störfum.

Fólk er beðið að vera ekki á ferli að nauðsynjalausu og huga að lausum munum. Foreldrar grunnskólabarna eru beðnir um að halda börnum sínum heima. 

Samkvæmt upplýsingum frá  Veðurstofunni nær veður hámarki um hádegisbil á höfuðborgarsvæðinu en þar verður áfram hvasst fram eftir degi.

Veður fer versnandi á Vestfjörðum.Vonskuveður eru um allt Vesturland. Á Snæfellsnesi hafa vindhviður farið  í 40 m/sek í Kolgrafarfirði og í allt að 50 m/sek undir Hafnarfjall og því ekkert ferðaveður. Hálkublettir eru á Holtavörðuheiði og þar er að hvessa, samkvæmt tilkynningu frá Almannavörnum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka