Grímseyjarferjunni Sæfara miðar hægt á siglingu norður til Akureyrar þar sem hún fer í slipp. Samkvæmt upplýsingum frá Vaktstöð siglinga skýrist það af því að einungis önnur vél ferjunnar hefur verið í lagi megnið af siglingunni. Eins er veður slæmt á siglingaleiðinni.