Segja úrskurð Mannréttindanefndar einnig ná til sjávarjarða

Stjórn Samtaka eigenda sjávarjarða vekur athygli á fram komnum úrskurði Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna, í máli tveggja sjómanna gegn íslenska ríkinu.

„Úrskurðurinn gengur m.a. út á að jafnræðis borgaranna um atvinnurétt til fiskveiða sé ekki gætt, ásamt því að greiða beri sjómönnunum fullar bætur og koma á fiskveiðistjórnunarkerfi sem uppfyllir kröfur alþjóðalaga.

Stjórn Samtaka eigenda sjávarjarða vekur ennfremur athygli á því að sjávarjarðir á Íslandi eiga bæði þinglýstan eignarrétt til sjávarins – netlög – og óskipta hlutdeild í sjávarauðlindinni í heild vegna sjávarins og lífríkisins og atvinnurétt á eigninni. Jafnframt vísa Samtök eigenda sjávarjarða til þess, að íslensk stjórnvöld hafa hvorki virt þinglýstan eignarrétt eigenda sjávarjarða né atvinnurétt til útræðis. Samningur Sameinuðu þjóðanna um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi, 26. grein samningsins um almennu jafnræðisregluna, hefur því verið brotinn á eigendum sjávarjarða, bæði hvað varðar eignarrétt og atvinnurétt.

Í þeirri baráttu að ná fram rétti sínum, sem eigendur sjávarjarða hafa ólöglega verið sviptir, munu samtökin taka mið af þessum úrskurði Sameinuðu þjóðanna,“ segir í frétt frá samtökunum.

Heimasíða samtakanna er á slóðinni www.ses.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka