Miðstjórn Alþýðusambands Íslands samþykkti í dag ályktun þar sem því er harðlega mótmælt, að ekki skuli farið að leikreglum við framkvæmd hópuppsagna 59 starfsmanna HB Granda hf. á Akranesi. Segir ASÍ hefur að mjög alvarlega hafi verið brotið gegn málsmeðferðarreglum laga um hópuppsagnir.
Í ályktuninni segir, að samkvæmt þeim upplýsingum sem ASÍ hafi aflað sér, hafi fyrirtækið ekki viðhaft lögbundið samráð eða látið trúnaðarmönnum starfsmanna í té skriflegar upplýsingar um fyrirhugaðar uppsagnir. Meðan svo sé, sé óheimilt að tilkynna starfsmönnum um uppsagnir á ráðningarsamningum.
„Miðstjórnin ASÍ leggur áherslu á að lögbundinn réttur starfsmanna til upplýsinga- og samráðs í tengslum við hópuppsagnir telst til mikilvægra réttinda launafólks og ASÍ lítur það alvarlegum augum þegar þau eru ekki virt. Miðstjórnin telur mikilvægt að samstaða náist í atvinnulífinu nú þegar mæta þarf erfiðleikum vegna niðurskurðar á aflaheimildum og þegar þeim erfiðleikum sé mætt verði í hvívetna farið að þeim samningum og lögum sem í gildi eru," segir í ályktuninni.