Kjarasamningar gætu náðst í þessari viku

Fulltrúar SA og Starfsgreinasambandsins á sáttafundi nýlega.
Fulltrúar SA og Starfsgreinasambandsins á sáttafundi nýlega. Árvakur/Kristinn

„Þetta gengur nokkuð vel allt saman. Í gær [laugardag] settum við saman vinnuskjal vegna samninga við Starfsgreinasambandið og Flóabandalagið. Það er eiginlega grundvallarskjal, sem hægt er svo að vinna út frá. Svo fæðast sams konar skjöl fyrir aðra hópa, einn af öðrum. Svo þarf eitthvað að stoppa í þetta eins og gengur, en þetta er allt á jákvæðum nótum,“ segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins um gang kjarasamninga.

Vilhjálmur segir að gangi allt vel gætu samningar náðst í þessari viku, en áfram verður fundað í dag. Þá ræða SA við Alþýðusambandið, Samiðn og Rafiðnaðarsambandið.

Hann segir að jafnframt þurfi að ræða aðkomu stjórnvalda að samningunum. Hún sé nauðsynleg. Þar megi nefna nokkur atriði eins og að hið opinbera hækki ekki laun starfsmanna sinna umfram það sem gerist í almennum kjarasamningum.

Hann nefnir einnig atvinnumálin. Atvinnuástand gæti orðið erfitt næsta haust og þá sé nauðsynlegt að stjórnvöld verði tilbúin með aðgerðir til að svara því. Þá sé einnig nauðsynlegt að greiða fyrir fjárfestingum í stóriðju.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert