Stjórn BSRB hefur sent frá sér ályktun þar sem mótmælt er harðlega þeirri kröfu sem Samtök atvinnulífsins hafi sett fram á hendur ríkisstjórninni um að hún fylgi þeirri launastefnu sem mótuð verði við samningaborð Samtaka atvinnulífsins.
„Þessi krafa um forræðisvald atvinnurekenda er ósvífin og ólýðræðisleg því hún byggir á því að hundsaðar verði kröfur sem fram koma frá hendi samtaka opinberra starfsmanna í kjarasamningum þegar þeir losna í vor. Krafan er einnig ósvífin að því leyti að hún byggir á því að launakjör á þeim stofnunum sem nú búa við vaxandi manneklu vegna bágra kjara verði ekki leiðrétt eins og margoft hefur verið látið í veðri vaka af hálfu stjórnvalda að gert verði í komandi kjarasamningum," segir m.a. í ályktuninni.