Leit að bandarísku Cessnavélinni sem fór í hafið vestur af Keflavík í gær verður fram haldið í dag uns dimmir. Aðstæður til leitar hafa batnað eftir því sem liðið hefur á daginn, að því er fram kemur í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni.
Varðskip LHG er við leit, ásamt flugvél gæslunnar og flugvél frá danska flughernum, sem leita úr lofti.