Vilhjálmur Egilsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins (SA) segist vonast til þess að öll landssamtök Alþýðusambandsins (ASÍ) komi saman að samningaborðinu í kjarasamningagerðinni sem nú stendur yfir.
„Við höfum komið vinnuskjölum í hendurnar á öllum landsamböndum ASÍ og höfum fundað með þeim velflestum síðustu daga. Þau vinnuskjöl eru í meginatriðum byggð á sama grunni og það vinnuskjal sem lagt var fyrir Starfsgreinasambandið um síðustu helgi. Ég hef góða von um að ná hópnum saman og það hefur gengið vel að afgreiða sameiginleg mál síðustu dagana.“
Kristján Gunnarsson formaður Starfsgreinasambandsins segist vonast til að hægt verði að fara að ræða launaliðinn í dag. „Mér sýnist á öllu að það sé kominn vilji til þess hjá aðildarfélögum ASÍ að koma sameiginlega að samningunum og það á ekkert að vera til fyrirstöðu að fara að ræða tölur.“
Geir H. Haarde forsætisráðherra sagði á Alþingi í gær að mjög jákvætt væri ef sérstakt átak yrði gert til að bæta kjör hinna lægst launuðu í þessum kjarasamningum. Þegar 24 stundir spurðu um aðkomu ríkisstjórnarinnar að kjarasamningum svaraði Geir því til að stjórnin væri reiðubúin að ræða við samningsaðila þegar hillti undir samninga.