Úttekt á starfsemi fangamóttöku flýtt

Fanginn slapp út um glugga á annarri hæð lögreglustöðvarinnar við …
Fanginn slapp út um glugga á annarri hæð lögreglustöðvarinnar við Hlemm. Árvakur/Brynjar Gauti

Lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins hefur ákveðið að flýta fyrirhugaðri úttekt innri endurskoðunar embættisins á starfsemi fangamóttöku lögreglunnar en hún var samkvæmt fyrirliggjandi áætlun innri endurskoðunar á dagskrá síðar á þessu ári.

Úttekt innri endurskoðunar mun ná til allra þátta sem snerta móttöku, vistun og meðferð fanga hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Er þetta gert í kjölfar þess að gæsluvarðhaldsfanga tókst að strjúka úr fangageymslum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu aðfaranótt föstudags.

Í tilkynningu frá lögregunni á höfuðborgarsvæðinu segir, að samhliða leit að fanganum, sem bar árangur síðar sama dag, hafi farið í gang ítarleg innanhússrannsókn á þeim atriðum sem úrskeiðis fóru og leiddu til stroks fangans. Sú rannsókn standi enn yfir en að kröfu lögreglustjóra sé verið að afla frekari gagna auk þess sem nánar sé verið að fara yfir alla þætti málsins, frá móttöku fangans deginum áður, til framkvæmdar vistunar, eftirlits, skráningar o.fl.

„Þegar liggur fyrir að móttaka og vistun fangans sem og eftirlit með honum var ekki í samræmi við gildandi verklagsreglur. Einnig liggur fyrir að fanganum fylgdu ekki nauðsynlegar upplýsingar um tilhögun og framkvæmd vistunar. Hins vegar eru ekki uppi grunsemdir um að starfsmenn embættisins hafi komið að málinu með refsiverðum hætti," segir í tilkynningunni.

Þegar niðurstöður rannsóknar embættisins á því hvað úrskeiðis fór liggja fyrir verður metið hvernig unnt sé að koma í veg fyrir að slíkt gerist á ný og viðeigandi úrbætur gerðar á framkvæmd og skipulagi þessara mála hjá embættinu. Jafnframt mun lögreglustjóri upplýsa dóms- og kirkjumálaráðuneytið um niðurstöður athugunar embættisins og hvernig brugðist verði við þeim atriðum sem aflaga fóru í meðferð embættisins á gæsluvarðhaldsfanganum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert