Hæstiréttur hefur dæmt karlmann á fimmtugsaldri í 10 mánaða fangelsi fyrir tvö þjófnaðarbrot, hilmingu, nytjastuld, þrjú fíkniefnalagabrot og réttindaleysi við akstur í tvö skipti. Maðurinn var dæmdur í 12 mánaða fangelsi í héraðsdómi en Hæstiréttur sýknaði hann af tveimur ákæruatriðum.
Fram kemur í dómi Hæstaréttar, að maðurinn er vanaafbrotamaður og hefur margítrekað gerst sekur um auðgunarbrot. Hann hefur setið í gæsluvarðhaldi frá því í september á síðasta ári.