Nefnd, sem fjallað hefur um starfsemi Breiðavíkurheimilisins, segir í skýrslu sinni, að ekki sé nokkur vafi á að dvöl á vistheimilinu á Breiðavík hefur haft mótandi áhrif á sjálfsmynd og persónulegan þroska einstaklinga sem dvöldu þar.
Erfitt sé þó að greina milli áhrifa Breiðavíkurdvalar og annarra uppeldisáhrifa en í flestum tilvikum hafi fyrrverandi vistmenn Breiðavíkurheimilisins komið frá heimilum þar sem aðstæður voru slæmar.
Í þeim tilvikum hafi börnin væntanlega verið í sérstakri þörf fyrir góða umönnun og aðbúnað eftir að þau voru fjarlægð af heimili sínu og jafnframt verið enn viðkvæmari fyrir illri meðferð.Að mati nefndarinnar virðast sumir vistmenn á afmörkuðum tímabilum í sögu Breiðavíkurheimilisins hafa orðið fyrir illri meðferð og/eða ofbeldi af hálfu starfsmanna og/eða annarra vistmanna. Bæði í ljósi fyrirliggjandi vitneskju um afleiðingar slíkra atburða, og af frásögnum fyrrverandi vistmanna í viðtölum við nefndina megi ráða, að margir þeirra hafi orðið fyrir varanlegum neikvæðum áhrifum af dvölinni þar.