Pólsk glæpagengi herja á löghlýðna Pólverja sem búa hér á landi, kúga þá og beita þá ofbeldi og að því er kom fram í fréttum Sjónvarpsins. Var þetta haft eftir þeim, sem urðu fyrir fólskulegri líkamsárás í húsi í Breiðholti síðdegis í gær. Lögreglan staðfesti þessar frásagnir við Sjónvarpið.
Haft var eftir einum hinna slösuðu, að hann hefði verið að horfa á sjónvarpið þegar maður kom inn og byrjaði að berja hann. Sagðist hann ekki vita hver ástæðan fyrir árásinni hefði verið.
Fjórir Pólverjar voru í dag úrskurðaðir í þriggja vikna gæsluvarðhald vegna árásarinnar en mun fleiri tóku þátt í atlögunni. Fram kom í fréttum Sjónvarpsins, að lögreglu gruni að einhverjir árásarmannanna búi í Reykjanesbæ.