Úrskurðaðir í gæsluvarðhald

Mennirnir hafa verið úrskurðaðir í þriggja vikna gæsluvarðhald.
Mennirnir hafa verið úrskurðaðir í þriggja vikna gæsluvarðhald. mbl.is/Brynjar Gauti

Fjórir menn sem réðust vopnaðir inn á heimili í Keilufelli í Breiðholti í gær og gengu í skrokk á mönnum sem þar voru fyrir hafa verið úrskurðaðir í þriggja vikna gæsluvarðhald. Lögregla hefur enn ekki haft uppi á fleiri mönnum sem taldir eru tengjast málinu en unnið er að rannsókn þess.

Talið er að tíu til tólf manns hafi tekið þátt í árásinni sem þótti sérlega fólskuleg. Ekkert hefur verið gefið upp um það hvort fyrir liggi upplýsingar um það hvað lá að baki árásinni .

Sjö voru fluttir á slysadeild eftir árásina og er einn þeirra mjög alvarlega slasaður. Mennirnir, sem ráðist var á, eru allir Pólverjar.  

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert