Lögreglan og tollgæslan á Suðurnesjum lögðu í gær hald á um þrjú kíló af amfetamíni sem hafði verið haganlega komið fyrir undir fölskum botni ferðatösku. Töskueigandinn var umsvifalaust handtekinn og í dag var hann færður fyrir dómara við Héraðsdóm Reykjaness og úrskurðaður í þriggja vikna gæsluvarðhald.
Maðurinn, sem er Íslendingur um tvítugt, var að koma frá París. Hann hefur áður komið við sögu lögreglunnar. Að sögn Eyjólfs Kristjánssonar, yfirlögfræðings lögreglustjórans á Suðurnesjum, var maðurinn handtekinn við hefðbundna tollleit.