Bílvelta varð í Kömbum rétt fyrir klukkan 11 í morgun. Ökumaður og farþegi voru fluttir á heilsugæsluna á Selfossi til frekari aðhlynningar en ekki var um alvarleg meiðsl að ræða. Að sögn lögreglunnar á Selfossi var ökumaður ekki vanur íslenskum aðstæðum en fólkið í bílnum er erlent.