Tilkynnt var um eld í Turninum við Smáratorg í Kópavogi laust fyrir klukkan tíu í kvöld. Eldurinn kviknaði á annarri hæð og leggur mikinn reyk frá honum.
Fólk var í húsinu, bæði á veitingastað á 19. hæð og líkamsræktarstöð á 12. hæð, en húsið hefur verið rýmt. Ekki var alveg ljóst hversu margt fólk var í húsinu, samkvæmt upplýsingum lögreglu.