Gera má ráð fyrir því að morgunflug til Evrópu frá Flugstöð Leifs Eiríkssonar tefjist að minnsta kosti um eina klukkustund vegna umferðarslyss og færðar á Reykjanes í morgun. Guðjón Arngrímsson upplýsingafulltrúi Icelandair sagði að aðstæður væru erfiðar og reikna mætti með töfum.