Fólkið sem slasaðist í umferðarslysi á Akureyri í morgun er talsvert slasað en ekki talið í lífshættu. Samkvæmt upplýsingum vakthafandi læknis á sjúkrahúsinu á Akureyri er fólkið enn í rannsókn og því liggja frekari upplýsingar um meiðsl þess ekki fyrir.
Samkvæmt upplýsingum lögreglu varð slysið með þeim hætti að fólksbíll í akstri valt og köstuðust bæði ökumaður og farþegi í framsæti út úr honum. Þá þurfti að losa annan farþega, sem sat í aftursæti, úr bílflakinu.