Þrjú flutt á sjúkrahús eftir umferðarslys á Akureyri

Bíllinn endaði á hvolfi.
Bíllinn endaði á hvolfi. mbl.is/Skapti

Bílvelta varð á gatnamótum Dalsbrautar og Borgarbrautar á Akureyri um klukkan 12:20 í dag. Samkvæmt upplýsingum lögreglu valt fólksbíll í akstri og köstuðust bæði ökumaður og farþegi út úr honum, voru þeir fluttir á sjúkrahúsið. Að svo stöddu er ekki vitað hversu alvarleg meiðsli fólksins eru.

Ökumaður bílsins var að koma niður Borgarbraut þegar hann missti stjórn á bílnum, sem lenti á ljósastaur og síðan á grjótgarði við veginn. Ökumaðurinn og farþegi í framsæti, sem báðir eru ungir karlmenn, köstuðust út úr bílnum en stúlka í aftursæti sat föst inni í bílflakinu. Slökkviliðsmenn náðu henni út og var fólkið allt  flutt á Sjúkrahúsið á Akureyri.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert