Pólskur karlmaður, sem er búsettur hérlendis og er eftirlýstur í heimalandi sínu vegna gruns um aðild að morði, var handtekinn um sjö leytið í kvöld, að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Handtökubeiðni barst lögreglunni frá pólskum yfirvöldum síðdegis og var maðurinn handtekinn í kjölfarið.