Pólskur karlmaður, sem gaf sig fram við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi eftir að handtökubeiðni á hendur honum barst frá skrifstofu alþjóðalögreglunnar Interpool í Póllandi, var í dag úrskurðaður í gæsluvarðhald til 6. maí.
Maðurinn er grunaður um aðild að hrottalegu morði í heimalandi sínu og er eftirlýstur þar. Framsalskrafa frá pólskum yfirvöldum barst dómsmálaráðuneytinu í gær.