Um helgina voru páskar hjá rétttrúnaðarkirkjunni og af því tilefni var sérstök dagskrá hjá söfnuði rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar á Íslandi. Hluti dagskrárinnar var að blessa páskamatinn og sá séra Timur Zolotuskiy um athöfnina að safnaðarfólki viðstöddu í safnaðarheimilinu við Sólvallagötu.