Formaður SFR: Þjóðinni splundrað

Frá baráttufundi verkalýðshreyfingarinnar á Ingólfstogi í dag
Frá baráttufundi verkalýðshreyfingarinnar á Ingólfstogi í dag mbl.is/ Frikki

Árni Stefán Jónsson, formaður SFR, sagði í ræðu sem hann hélt baráttusamkomu verkalýðshreyfingarinnar á Ingólfstorgi í Reykjavík í dag að við stofnun lýðveldisins hafi liðsheildin skipt sköpum. Þá hafi þjóðin verið samtaka um að enginn einstaklingur hafi verið meira virði en þjóðin.

Nú sé hins vegar öldin önnur, Þjóðinni hafi verið sundrað. Búið sé að telja þjóðinni trú um að eðlilegt sé að stjarnfræðileg uppsöfnun eigi sér stað innan takmarkaðs hóps ofurlaunaaðalsins á meðan aðrir hópar sitji eftir. „Það er ekki ásættanlegt að 2500 fjölskyldur þurfi matargjafir fyrir jólin á meðan einkaþotuliðið heldur upp á afmæli sín  fyrir hundrað milljónir," sagði hann. „Það er ekki ásættanlegt að launafólk sé með 120.000 krónur í mánaðarlaun á meðal ofurlaunaaðallinn er með fimm milljónir."  

Árni sagði þjóðina aldrei hafa fengið neitt á silfurfati og að nú reyni enn á ný á þolrif hennar Vikan hafi ekki byrjað gæfulega. Verðbólgan sé nú hærri en hún hafi verið í áraraðir og yfirvöld hafi ákveðið að ráðast í niðurrif á velferðarkerfinu. Talað sé um einkavæðingu Landspítalans í fullri alvöru og við það beitt vel þekktum blekkingaraðferðum. Almenningur muni hins vegar aldrei samþykkja að velferðarkerfið verði fært einkavinum ráðamanna að gjöf.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert