Vísbendingum fylgt eftir

Ræninginn ógnaði starfsfólki með tveimur hnífum.
Ræninginn ógnaði starfsfólki með tveimur hnífum.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú bankaránið sem framið var í Hafnarfirði í gær. „Við fengum nokkrar vísbendingar í kjölfar myndbirtingarinnar og þeim verður fylgt eftir," sagði Sigurbjörn V. Eggertsson aðstoðaryfirlögregluþjónn við Fréttavef Morgunblaðsins.

Ræninginn sem talinn er vera milli 20 og 25 ára  komst undan á hlaupum og fannst ekki þrátt fyrir víðtæka leit á landi og úr lofti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert