Til slagsmála kom á milli tveggja manna á Skagaströnd á sjötta tímanum í morgun að sögn lögreglunnar á Blönduósi. Að sögn lögreglu höfðu mennirnir slegist í einhvern tíma þegar annar þeirra tók upp hníf og skar hinn. Að sögn lögreglu særðist maðurinn á hendi en ekki er talið að um alvarleg meiðsl hafi verið að ræða, en hann fór sjálfur á slysadeild til aðhlynningar. Sá sem beitti hnífnum var handtekinn af lögreglu.