N1 hefur í kjölfar styrkingar krónunnar gagnvart Bandaríkjadal ákveðið lækkun á verði á eldsneyti. Lítrinn af bensíni lækkar um 3 krónur en dísilolía og aðrar tegundir lækka um 2 krónur lítrinn. Fyrr í vikunni hækkuðu olíufélögin verð á bensíni um 3 krónur og verð á dísilolíu um 5 krónur.