Ólafur Áki Ragnarsson, bæjarstjóri sveitarfélagsins Ölfuss, segir mikilvægt að fara vel yfir álit Skipulagsstofnunar bæði í bæjarstjórn og skipulags- og byggingarnefnd. Það sé hinsvegar í höndum Orkuveitu Reykjavíkur að ákvarða hvert framhaldið verður.
Ólafur Áki sagðist hafa verið að fá álit Skipulagsstofnunar varðandi fyrirhugaða framkvæmd við Bitruvirkjun og Hverahlíðarvirkjun í hendurnar og gæti því lítið tjáð sig um það. Það sé í höndum sveitarfélagsins að gefa út skipulag um svæðið en ekki framkvæmdin sjálf.
Skipulagsstofnun segir í áliti sínu, bygging Bitruvirkjunar sé ekki viðunandi vegna verulegra neikvæðra og óafturkræfra áhrifa á landslag, útivist og ferðaþjónustu. Þá þurfi að setja ströng skilyrði fyrir byggingu Hverahlíðarvirkjunar þar sem virkjunin komi til með að hafa talsverð neikvæð sjónræn áhrif.