Samþykkir Hverahlíðarvirkjun með skilyrðum

Hellisheiðarvirkjun.
Hellisheiðarvirkjun. mbl.is/Rax

Skipulagsstofnun hefur gefið álit sitt um mat á umhverfisáhrifum allt að 90 MW jarðvarmavirkjunar við Hverahlíð, Sveitarfélaginu Ölfusi. 

Stofnunin segir að mikil óvissa sé um áhrif fyrirhugaðrar virkjunar við Hverahlíð á jarðhitaauðlindina, áhrif á loftgæði ráðist alfarið af virkni hreinsibúnaðar fyrir brennisteinsvetni sem fyrirhugað sé að koma upp og áhrif á grunnvatn ráðist af því að skiljuvatni verði veitt um fóðraðar  niðurrennslisholur niður fyrir grunnvatnsborð.

Skipulagsstofnun telur að setja þurfi skilyrði fyrir framkvæmdinni, sem lúti að áhrifum á jarðhitaauðlindina, áhrifum á grunnvatn og áhrifum á loftgæði. Skipulagsstofnun telur að fyrirhuguð virkjun við Hverahlíð komi til með að hafa talsverð neikvæð sjónræn áhrif  sem muni breyta ásýnd svæðis við Suðurlandsveg og hafa í för með sér talsvert rask á mosavaxinni hraunbreiðu. 

Svæðið sé hins vegar að mörgu leyti einsleitt m.t.t.  landslagsásýndar. Nálægð við fjölfarinn þjóðveg og nágrenni áhrifasvæðis Hellisheiðarvirkjunar geri það m.a. að verkum, að upplifun svæðisins sem lítt snortins kyrrláts svæðis sé ekki fyrir hendi, að því er fram kemur í áliti Skipulagsstofnunar.

Fyrirhuguð Hverahlíðarvirkjun er jarðvarmavirkjun, sem Orkuveita Reykjavíkur fyrirhugar að reisa á svæði við Hverahlíð í Sveitarfélaginu Ölfusi sem geti nægt til allt að 90 MW afmagnsframleiðslu. Um er að ræða framkvæmdir sem samanstanda af mörgum framkvæmdaþáttum á um 320 ha skilgreindu framkvæmdasvæði.

Samkvæmt matsskýrslu eru markmið með fyrirhugaðri framkvæmd að mæta aukinni eftirspurn atvinnuvega eftir raforku. Áætlað er að hefja framkvæmdir á þessu ári og að raforkuframleiðsla hefjist árið 2010. 

Álit Skipulagsstofnunar í heild 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka