Öllu hættuástandi í Fossvogi, vegna sprengju sem þar fannst í dag, hefur verið aflétt, segir í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Sprengjan var gerð óvirk og flutt á brott.
Sprengjan fannst í húsgrunni við Furugrund í Kópavogi. Tilkynning barst til lögreglu klukkan 13.22 um járnhlut sem líklega væri sprengja. Í ljós kom að um var að ræða gamla flugvélasprengju frá síðari heimsstyrjöld.
Töluverður viðbúnaður lögreglu, slökkviliðs, sprengjufræðinga ríkislögreglustjóra og Landhelgisgæslunnar var á vettvangi. Á fjórða tímanum var búið að gera sprengjuna óvirka.