Geir Jón Þórisson, yfirlögregluþjónn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu segir að lögregla sé að fara yfir atvik, sem átti sér stað á milli lögregluþjóns og ungs pilts í 10/11 verslun í gær, og að von sé á tilkynningu frá lögreglunni.
Um er að ræða atvik sem náðist á myndband og var birt á YouTube myndbandavefsíðunni. Þar sést lögregluþjónn taka pilt hálstaki, sem grunaður var um þjófnað í versluninni. Á myndbandinu sést þegar lögreglumaðurinn spyr piltinn hvort hann sé með eitthvað á sér, og pilturinn neitar sök. Þá tekur lögregluþjóninn piltinn hálstaki og segir honum að vera ekki með kjaft.
Myndbandið má sjá hér