Vátryggingafélag Íslands, VÍS, hefur sett af stað viðbragðsáætlun vegna jarðskjálftans í dag. Er viðskiptavinum félagsins bent á að tilkynna tjón til félagsins með því að hringja í þjónustuver í síma 560-5000 eða tilkynna tjónið á næstu þjónustuskrifstofu. Einnig er hægt að fylla út tjónstilkynningu á vef félagsins www.vis.is.
Sjóvá hefur einnig sett í gang viðbragðsáætlun sem starfað er eftir núna. Starfsfólk Sjóvá vill hvetja fólk sem hefur orðið fyrir tjóni af völdum skjálftans að hafa samband við tjónaþjónustu Sjóvá í síma 440 2000. Einnig er hægt að tilkynna tjónin á vef félagsins, www.sjova.is og eru nánari leiðbeiningar að finna þar.
Þá benda Tryggingamiðstöðin, Sjóvá og VÍS fólki, sem orðið hefur fyrir tjóni af völdum jarðskjálfta, á að taka ljósmyndir af skemmdunum og tilkynna tryggingafélagi sínu þær sem fyrst. Þegar málið hefur verið skoðað af tryggingafélagi ákvarða Viðlagasjóður og tryggingafélag næstu skref.
Tjón á lausafé, svo sem á innbúi og húseignum af völdum jarðskjálfta er bætt af Viðlagatryggingu Íslands.
Ef fólk þarf að yfirgefa heimili sín er það hvatt til að skrúfa fyrir vatnsinntök og rjúfa rafstraum.