Annþór neitar alfarið sök

Héraðsdómur Reykjavíkur.
Héraðsdómur Reykjavíkur. mbl.is

Annþór Kristján Karlsson neitar sök í báðum liðum ákærunnar í hraðsendingarmálinu svokallaða en þingfesting málsins fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í gærmorgun. Eru fjórir menn annars vegar ákærðir saman og hins vegar er sér kafli fyrir hvern.

Eins og Annþór neitar Tómas Kristjánsson sök í báðum liðum en Ari Gunnarsson játar. Jóhannes Páll bróðir hans segist ekki hafa komið að skipulagningu smyglsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert