Burðarþolssérfræðingar hafa tekið út byggingu Heilbrigðisstofnunar Suðurlands við Árveg á Selfossi. Segir á heimasíðu stofnunarinnar, að engar skemmdir séu á burðarmannvirki hússins en smávægilegar sprungur í múrhúð.
Ragnar Sigurbjörnsson, forstöðumaður Jarðskjálftastofnunar HÍ, kom á fund starfsfólksins og lýsti því hvað gerist í jarðskjálfta af þessum styrkleika. Starfsfólki var fullvissað um að óhætt væri að halda uppi eðlilegri starfsemi í húsinu.
Magnús Skúlason,
forstjóri stofnunarinnar, sagði sagði frá því að almannavarnadeild ríkislögreglustjóra hefði fyrirskipað flutning allra
sjúklinga úr húsinu í gær. En eftir að Guðjón Sigfússon, verkfræðingur og
sérfræðingur í burðarþoli, hafði skoðað bygginguna og ljóst var að engar
skemmdur voru á burðarþoli hennar, var leyft að flytja fólkið aftur á
sjúkrahúsið.
Séra Kristinn Ágúst Friðfinnson mun í dag eiga fundi með starfsfólki og sjúklingum sem óska þess.