Bæjarstjórn Árborgar boðar til íbúafundar á morgun vegna jarðskjálftanna síðustu daga. Á fundinn mæta fulltrúar frá sveitarfélaginu, almannavörnum, lögreglu, björgunarsveitum, Rauða krossinum, Heilbrigðisstofnun og Viðlagatryggingu Íslands.
Farið verður yfir stöðu mála og það sem framundan er. Fundurinn verður haldinn í Sunnulækjarskóla á Selfossi og hefst hann kl. 17.