Nokkur hundruð manns hefur nýtt sér áfallahjálp Rauða krossins undanfarna 3 daga á skjálftasvæðinu og segja samtökin ljóst, að mikil þörf sé á þeirri þjónustu áfram. Rauði krossinn verður með vakt í Hveragerði og á Selfossi eftir lokun þjónustumiðstöðva þar í kvöld, og fram til hádegis á morgun.
Fólki er einnig bent á að hringja í Hjálparsíma Rauða krossins 1717 til að leita sér upplýsinga og aðstoðar.
Í Hveragerði verða sjálfboðaliðar við í húsnæði Rauða krossins í Austurmörk frá kl. 18 í kvöld og getur fólk leitað þangað eftir lokun þjónustumiðstöðvar sem er í sama húsi.
Þá verða sjálfboðaliðar á vakt á Selfossi í húsnæði Rauða krossins að Eyravegi 23 frá kl. 19 í kvöld og fram á hádegi á morgun sunnudag þegar þjónustumiðstöðin í Tryggvaskála opnar aftur.
Fólk getur því leitað til Rauða krossins allan sólarhringinn þó svo að fjöldahjálparstöðvum hafi verið lokað við grunnskólann í Hveragerði og Vallarskóla á Selfossi frá og með deginum í dag.
Áfallahjálparteymi Rauða krossins mun einnig halda áfram að veita þjónustu í þjónustumiðstöðvunum frá kl. 12-16 á morgun, í húsnæði Rauða krossins í Hveragerði, og í Tryggvaskála á Selfossi.